Stoltenberg heimsótti Landhelgisgæsluna

Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsótti Landhelgisgæslu Íslands í dag.
Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsótti Landhelgisgæslu Íslands í dag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kynnti sér varnartengd verkefni Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og loftrýmisgæslu Bandaríkjanna sem fram fer nú um stundir undir merkjum Atlantshafsbandalagsins í dag. 

Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar ásamt starfsmönnum Landhelgisgæslunnar tók á móti framkvæmdastjóranum og fór með hann og hans fylgdarlið um Öryggissvæðið þar sem öll helstu verkefni voru kynnt, þar með talið dagleg framkvæmd verkefna sem þar fer fram í samvinnu við stofnanir bandalagsins.  

„Heimsókn sem þessi er mikilvæg í þeim tilgangi að sýna yfirmönnum Atlantshafsbandalagsins hvernig dagleg framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna fer fram á Íslandi en fjöldi mannvirkja og búnaðar á Öryggissvæðunum eru á eignalista bandalagsins og hefur bandalagið styrkt framkvæmdir við viðhald og rekstur þeirra. Heimsókn framkvæmdastjórans til Landhelgisgæslunnar endaði í stjórnstöð NATO á Íslandi.

Þar sér Landhelgisgæslan um framkvæmd samþætts loftrýmiseftirlits og loftrýmisgæslu í samvinnu við þær þjóðir sem eru hér á landi á hverjum tíma og aðgerðarstjórnstöð NATO (Combined Air Operations Center) í Uedem í Þýskalandi en stjórnstöðin hér á landi er auk þess tengd stjórnstöðvum NATO í Norður Ameríku, Noregi, Danmörku og Bretlandi,“ segir í tilkynningu. 

Síðla dags mun framkvæmdastjórinn heimsækja varðskipið Þór þar sem innanríkisráðherra, Ólöf Norðdal og forstjóri Landhelgisgæslunnar taka á móti honum og kynna skipið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert