Dómari þarf ekki að víkja vegna skrifstofu maka

Sigurjón Þ. Árnason
Sigurjón Þ. Árnason mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að dómari í máli LBI gegn Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, þurfi ekki að víkja þrátt fyrir að eiginmaður dómarans er með skrifstofu í sama húsi og lögmaður bankans (LBI).

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Sigurjóns, skaut málinu til Hæstaréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að Sigríður Hjaltested héraðsdómari þyrfti ekki að víkja sæti í málinu þar sem eiginmaður hennar, Valtýr Sigurðsson rekur lögmannsstofu í sama húsi og Kristinn Bjarnason, sem er í fyrirsvari fyrir Landsbankann í málinu gegn Sigurjóni.

Segir í niðurstöðu Hæstaréttar að ekki liggi fyrir atvik eða aðstæður, sem valda því að héraðsdómarinn verði talin vanhæf til að fara með framangreint mál vegna ákvæðis laga um meðferð einkamála í héraði.

LBI hefur stefnt Sigurjóni vegna séreignar hans í lífeyrissjóði frá þeim tíma sem hann var bankastjóri.

Krefa Sigurjón um rúmar 35 milljónir

LBI krefst þess að staðfest verði riftun dagsett 30. ágúst 2011 á ráðstöfun sem fólst í greiðslu Landsbanka Íslands hf. í séreignalífeyrissparnaðarsjóð í þágu Sigurjóns 2. október 2008 samtals að fjárhæð 35.140.000 kr.

Þá krefst LBI þess að Sigurjón verði dæmdur til að greiða sér 35.140.000 kr. með dráttarvöxtum. Sigurjón krefst þess að vera sýknaður af öllum kröfum LBI en til vara að fjárkrafan verði lækkuð verulega.

Sigurður G. Guðjónsson sendi dómara við héraðsdóm tölvubréf á tíunda tímanum kvöldið áður en málið var tekið fyrir og krafðist þess að dómari myndi víkja vegna vanhæfis.

Yfir 20 lögfræðingar með skrifstofu í húsinu

Ástæða þess var tilgreind sú að skrifstofa Kristins Bjarnasonar hrl., sem skráður er í fyrirsvari fyrir mál þetta, er í sama húsi og skrifstofa eiginmanns dómarans að Lágmúla 7 í Reykjavík. Taldi lögmaðurinn að slíkar aðstæður væru til þess fallnar að draga mætti óhlutdrægni dómarans í efa. Lögmaður stefnanda mótmælti kröfunni.

Upplýst var fyrir dómi að  Kristinn Bjarnason er einn fjögurra eigenda félags sem á og rekur fasteign að Lágmúla 7 á þremur hæðum. Félagið leigir yfir 20 lögfræðingum skrifstofur en hver og einn þeirra rekur sjálfstætt sína stofu og á eigin kennitölu. Í leigugjaldi er innifalinn aðgangur að kaffistofu á hverri hæð, auk símaþjónustu og sameiginlegum netþjóni. Að mati dómarans er ekkert fram komið sem gefur til kynna að tengsl á milli eiginmanns hans og Kristins Bjarnasonar séu þess eðlis að draga megi óhlutdrægni dómarans í efa. 

Þeir hafa hvorki með höndum sameiginlegan rekstur né eiga sameiginlegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta.  Að mati dómarans þurfa að liggja fyrir röksemdir um að tengsl þeirra séu önnur og meiri en almennt eru á milli manna sem eru í sömu aðstöðu og eiginmaður dómarans að Lágmúla 7. Þær liggja hins vegar ekki fyrir.

Samkvæmt ofangreindu er hafnað kröfu stefnda um að dómari víki sæti í málinu, segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. 

Frá því að dómari málsins fékk málinu úthlutað í apríl 2013 var Kristinn Bjarnason hrl. skráður í fyrirsvari fyrir það, allt til 30. október 2013. Hann tók við málinu aftur 5. mars sl. af Herdísi Hallmarsdóttur hrl. en hún mun einnig hafa haft skrifstofu að Lágmúla 7 á þeim tíma.

„Af því sem rakið hefur verið verður að ætla að lögmaður stefnda hafi haft tök á því að setja fram kröfu sína um að dómari viki sæti mun fyrr og jafnvel í tengslum við flutning um frávísunarkröfu hans 26. september 2013.

Eins og áður sagði gerði lögmaður stefnda kröfu um að dómarinn viki sæti vegna meints vanhæfis hans með tölvubréfi seint í gærkvöldi. Aðalmeðferð hafði þá verið ákveðin með löngum fyrirvara og átti að vera í dag kl. 9:30. Að mati dómsins er aðfinnsluvert að hafa ekki sett kröfu þessa fram fyrr,“ segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 17. mars sl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert