Unnu samtals 320 milljónir króna

AFP

Ljónheppnir spilarar í EuroJackpot-lottóinu eru tæpum 46 milljónum króna ríkari hver eftir útdrátt kvöldsins. Vinningshafarnir eru sjö talsins. Enginn var með fyrsta vinning kvöldsins 7,7 milljarða króna, en sex fengu annan vinning og einn þann þriðja.

Fimm vinningsmiðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn á Spáni og einn í Danmörku. Einn var með annan Jóker-vinninginn hér á landi og fær 100 þúsund krónur að launum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert