Karlmaður liggur nú alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hafa fallið af fjórhjóli við Fróðengi í Grafarvogi. Samkvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæsludeild er maðurinn ekki í lífshættu og er hann með meðvitund.
Slysið átti sér stað um klukkan hálfníu síðastliðið laugardagskvöld. Var maðurinn í kjölfar þess fluttur með alvarlega áverka undir læknishendur. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir en lögreglan vinnur nú að rannsókn slyssins.