Gera sitt besta eða koma ekki aftur

Það ríkir mikil eftirvænting í Laugardalshöllinni núna þar sem liðin sem taka þátt í úrslitum Skólahreysti undirbúa sig fyrir kvöldið. Óskar Le Qui Khuu Júlíusson, sem keppir fyrir Réttó, segir léttur í lund að dagsskipunin sé að gera sitt besta en ef ekki geti hann sleppt að koma aftur í skólann. 

Allt er þetta nú í gamni sagt en krakkarnir segja alla vera spennta fyrir kvöldinu. mbl.is kom við í Laugardalshöllinni rétt áðan þar sem krakkarnir voru að fara yfir þrautirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert