Vatnsslagur á Lækjartorgi í dag

Þeir sem hafa áhuga á að blotna smá í dag …
Þeir sem hafa áhuga á að blotna smá í dag og bleyta aðra ættu að kíkja niður á Lækjartorg. AFP

Um áttatíu manns hafa skráð sig til leiks í vatnsslaginn H2015 sem fram fer á Lækjartorgi í dag klukkan tvö. Nokkrir slagir fara fram þar sem tíu manna fylkingar með vatnsbyssur, vatnsblöðrur og vatnsfötur stríða.

Í tilkynningu kemur fram að nokkur pláss séu enn laus fyrir áhugasama þátttakendur sem náðu ekki að skrá sig í tíma á mánudag. Auk þess verða sæti þeirra sem forfallast fyllt á staðnum. Áhugasamir komi því tímanlega á Lækjartorg og láti vita af sér.

Tekið er fram að veðurspáin sé köld, en þó yfir frostmarki og bjart. Þar sem allir þátttakendur fá lánuð regnföt frá 66°NORÐUR ættu flestir þó að komast þokkalega þurrir frá slagnum. Mælt er með vatnsheldum skófatnaði. Kynnir á uppákomunni verður Arnmundur Ernst Backmann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert