Bændasamtök Íslands fagna því að undanþágunefnd BHM hafi síðastliðinn föstudag samþykkt að veita undanþágur frá verkfalli dýralækna, svo að alifuglaslátrun gæti farið fram. Samtökin líta svo á að með því hafi verið brugðist við þeim alvarlega dýravelferðarvanda sem kominn var upp í alifuglaræktinni, þar sem slátrun verður að fara fram jafnt og þétt. Sé það ekki gert verður á skömmum tíma of þröngt í eldishúsum fuglanna, sjúkdómahætta eykst verulega og almennri velferð dýranna er hætta búin.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Bændasamtökin benda á að sambærileg staða komi upp í svínarækt strax í þessari viku, en engar undanþágur hafa verið veittar í þeirri grein. Frá upphafi verkfalls hafa sláturleyfishafar sótt um undanþágur á grundvelli dýravelferðar, eins og skýrt kemur fram i umsóknum sem liggja fyrir hjá Matvælastofnun.
„En þó svo að undanþága sé veitt fyrir slátrun má ekki að svo stöddu setja vörurnar á markað heldur eingöngu í frystingu. Slátrun án markaðssetningar þýðir að bændur fá ekki greitt fyrir afurðir sínar. Slíkt leiðir fljótt til mikils vanda í rekstri búanna og veldur þeim verulegu og óafturkræfu tjóni, hvern einasta dag sem verkfallið stendur.
Bændasamtökin leggja því þunga áherslu á að deiluaðilar gangi til samninga sem allra fyrst. Vandinn vex með hverjum deginum sem verkfallið stendur og getur valdið óbætanlegu tjóni fyrir íslenskan landbúnað ef það dregst á langinn.“