Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, mánudaginn 27. apríl. Í dag er nokkur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Næstu daga er áfram búist við að þurrviðri og nokkrum vindi sem getur þyrlað upp ryki, sérstaklega við miklar umferðargötur, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Klukkan 11 var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 46 míkrógrömm á rúmmetra og 95 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöð sem staðsett er við Bíldshöfða 2. Sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Í gær 26. apríl fór sólarhringsstyrkur svifryks yfir heilsuverndarmörkin við bæði Grensásveg og Bíldshöfða. Við Grensásveg var sólarhringsstyrkurinn 127 míkrógrömm á rúmmetra og 149 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Bíldshöfða.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.
Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsettar við leikskólann Öskju við Nauthólsveg 87 og í Ártúnsbrekku við Bíldshöfða 2.