Vegir eru greiðfærir að heita má um allt sunnanvert landið. Hvassviðri er á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli.
Á Vesturlandi eru flestir vegir greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og í Svínadal. Snjóþekja og skafrenningur er á Bröttubrekku en Fróðárheiði er ófær og þar er stórhríð.
Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vestfjörðum. Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi. Ófært er á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði og áætlað að reyna mokstur um hádegi. ófært er norður í Árneshrepp.
Það er víða hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur á Norðurlandi.
Snjóþekja og stórhríð er á milli Laugarbakka og Blönduóss. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði. Ófært er á Hólasandi og í Hófaskarði og þæfingsfærð um Tjörnes. Ófært er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi en mokstur stendur yfir.
Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og víða skafrenningur. Lokað er á Fjarðarheiði en mokstur stendur yfir. Ófært er á Vatnsskarði eystra. Snjóþekja og skafrenningur er á Oddsskarði og Fagradal. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar.