Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan við Hvolsvöll. Lögreglan og sjúkralið er að störfum á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Ekki er vitað hvort slys hafi orðið á fólki.
Suðurlandsvegur verður því lokaður um óákveðinn tíma vegna slyssins. Vegfarendum er bent á Dímonarveg og Fljótshlíðarveg.