Tveir erlendir ferðamenn sem fluttir voru á Landspítala eftir bílveltu við Suðurlandsveg austan við Hvolsvöll í gær hafa verið útskrifaðir af gjörgæslu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli var bílnum ekið í vesturátt þegar óhappið átti sér stað. Bifreiðin fór yfir á rangan vegarhelming og svo sjást bremsuför yfir á réttan helming þar sem bíllinn fór út af og valt.
Rannsókn lögreglu stendur enn yfir. Vitni varð að bílslysinu en viðkomandi ók bíl sínum á eftir bíl ferðamannanna.