Reyndi að stela dekkjum

Dekk.
Dekk. mbl.is/Rósa Braga

Lögreglumenn á eftirlitsferð um Höfðahverfi komu að manni á fjórða tímanum í nótt vera að taka dekk undan bifreið skammt frá bifreiðaumboði. Var hann búinn að taka þrjú dekk undan bifreiðinni þegar lögreglumenn trufluðu hann við verkið. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert