Hafa þungar áhyggjur af stöðu mála

Matvælastofnun hefur áhyggjur af ástandi mála, sér í lagi á …
Matvælastofnun hefur áhyggjur af ástandi mála, sér í lagi á svínabúum, og mun halda áfram að sækja um undanþágu frá verkfalli fyrir starfsfólk stofnunarinnar til fylgjast með dýravelferð. mbl.is/Helgi Bjarnason

Aðstæður eru mjög erfiðar vegna verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun. Vegna ástandsins hefur stofnunin sent fjölmargar beiðnir til undanþágunefndar, m.a. til að fá leyfi til að sinna eftirliti á sláturhúsum. Undanþágur hafa verið veittar en þar til í morgun hafa engar undanþágur verið samþykktar vegna slátrunar á svínum.

Þetta kemur fram í ályktun sem fagráð um velferð dýra samþykkti eftir fund sem sem fór fram í gær. Til fundarins var boðað að beiðni fulltrúa Bændasamtaka Íslands í ráðinu. Umræðuefni fundarins voru áhrif verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun á velferð dýra.

Fagráðið lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áhrifa verkfallsins og hvetur það Matvælastofnun til að hafa náið eftirlit með velferð eldisdýra á meðan það stendur. 

Fjallað er um málið á heimasíðu MAST. Ályktunin sem var samþykkt á fundinum er svohljóðandi:

„Fagráð um velferð dýra lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áhrifa yfirstandandi verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun á velferð dýra. Ráðið hvetur stofnunina til þess að hafa náið eftirlit með velferð eldisdýra á meðan á verkfalli stendur. Í þeim tilvikum sem ljóst er að þéttleiki sláturdýra er yfir leyfilegum mörkum þarf að bregðast við strax með slátrun. Ráðið tekur ekki afstöðu til þess hvort afurðir séu geymdar eða settar á markað.

Við þær mjög erfiðu aðstæður sem verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun veldur hefur stofnunin reynt að tryggja svo sem kostur er að dýr þurfi sem minnst að líða og hefur í því skyni sent fjölmargar beiðnir til undanþágunefndar, um leyfi til að kalla starfsfólk stofnunarinnar út til að sinna eftirliti á sláturhúsum, kanna ástand á búum og bregðast við ábendingum um brýn mál er varða dýravelferð. Undanþágur hafa verið veittar í mörgum tilvikum en þar til í morgun hafa engar undanþágur verið samþykktar vegna slátrunar á svínum. Matvælastofnun hefur áhyggjur af ástandi mála, sér í lagi á svínabúum, og mun halda áfram að sækja um undanþágu frá verkfalli fyrir starfsfólk stofnunarinnar til fylgjast með dýravelferð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert