Bifreið var ekið í veg fyrir bifhjól í hringtorgi á gatnamótum Lækjargötu og Reykjanesbrautar í Hafnarfirði um sjöleytið í gærkvöldi. Ökumaður bifhjólsins fann til eymsla í baki og hönd og fór á slysadeild til aðhlynningar.
Um níu leytið var tilkynnt um umferðaróhapp / bifhjólaslys í Rimahverfi. Ökumaðurinn meiddur á báðum úlnliðum, ökkla og bringu og fór á slysadeild til aðhlynningar.