Það var stálheppinn Norðmaður sem var einn með allar sex tölurnar réttar þegar dregið var út í Víkingalottóinu og er hann 422 milljónum króna ríkari. Þá gekk Ofurpotturinn einnig út.
Fimm miðaeigendur á Íslandi voru með fjórar réttar Jókertölur og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning.