Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af pari í Laugardal síðdegis í gær vegna vörslu fíkniefna. Áður hafði verið tilkynnt til lögreglu um fíkniefna sölu parsins.
Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og ölvunar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt.
Lögreglan stöðvaði för sautján ára gamallar stúlku á Tunguvegi um ellefu leytið í gærkvöldi en hún er grunuð um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Málið afgreitt með aðkomu foreldris.
Um miðnætti var bifreið stöðvuð á Kringlumýrarbraut eftir hraðamælingu. Ökumaðurinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og áfengis.
Á öðrum tímanum í nótt var ökumaður stöðvaður á Bústaðavegi grunaður um ölvunarakstur.
Lögreglan stöðvaði bifreið í Grafarvogi um eitt leytið í nótt. Ökumaðurinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, aka ítrekað sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna.