„Velferð dýranna er stefnt í voða“

„Síld og fiskur er eini svínaræktandinn sem ekki fær undanþágu til slátrunar. Fyrirtækið lítur svo á að dýravelferð sé algild og að henni verði ekki vikið til hliðar vegna hagsmuna fólks í kjarabaráttu,“ segir í fréttatilkynningu frá Síld og fiski ehf. en undanþáguhópur Dýralæknafélags Íslands hafnaði í dag beiðni Matvælastofnunar um að fyrirtækið fengi að slátra alls 360 grísum á þremur dögum á búunum að Minni-Vatnsleysu og Þórustöðum.

„Enginn rökstuðningur fylgdi svarinu en Matvælastofnun minnti á það í erindi til Síldar og fisks að undanþáguhópurinn hefði áður sett það skilyrði fyrir undanþágu til slátrunar að umsókn fylgdi yfirlýsing frá viðkomandi svínabúum um að afurðir færu ekki á markað. Síld og fiskur ehf. sækir um undanþágu á sömu forsendum og aðrir svínaræktendur, þ.e. á grundvelli dýravelferðar með vísan í reglugerðarákvæði um rými í stíum. Grísirnir eru komnir í sláturstærð og stækka áfram dag frá degi. Velferð dýranna er stefnt í voða,“ segir ennfremur.

Þá segir að Síld og fiskur hafi ekki skrifað undir samkomulag sem Dýralæknafélagið og Bandalag háskólamanna hafi neytt bændur til að gangast undir þess efnis að þeir fengju að slátra grísum að því tilskyldu að kjötið færi í frystigeymslur en ekki á markað. Fyrirtækið telji hins vegar að veiting undanþága eigi að snúast um dýravelferð en ekki hagsmuni í kjarabaráttu.

„Verkfall dýralækna hjá Matvælastofun hefur nú staðið í liðlega þrjár vikur og ástandið á kjúklinga- og svínabúum versnar stöðugt. Stjórnvöld landsins hljóta að grípa inn í atburðarásina áður en hreint neyðarástand skapast eða ber svo að skilja að kjarabarátta víki dýravernd til hliðar þegar það hentar?“ segir að endingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka