Vildi að Eygló drægi frumvarpið til baka

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert

Fjármálaráðuneytið óskaði eftir því að Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, drægi frumvarp sitt um stofnframlög vegna stuðnings við félagslegt húsnæði til baka. Þetta upplýsti hún í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hún sagðist hafa hafnað því að afturkalla frumvarpið.

Nokkrir fjölmiðlar hafa greint frá því á undanförnum dögum að frumvarpið hafi verið dregið til baka, eins og fjallað var um á mbl.is í gær. Eygló sagði það ekki rétt.

„Í um­fjöll­un um hús­næðismál hef ég ít­rekað vísað til þess að stjórn­völd verði að standa fyr­ir aðgerðum sem orðið geta til þess að fjölga val­kost­um á hús­næðismarkaði, meðal ann­ars með því að styðja við upp­bygg­ingu á virk­um leigu­markaði.  Ég hef einnig sagt að slík­ar aðgerðir gætu orðið til þess að greiða fyr­ir kjara­samn­ing­um og þau mál hafa verið til skoðunar að und­an­förnu,“ var haft eftir henni í tilkynningu í gær.

Ekki sé hægt að segja fyr­ir hvort breyt­ing­ar verði gerðar á frum­varp­inu en það muni skýr­ast á næst­unni. Reynsl­an kenn­i að fram­far­ir í fé­lags­lega hús­næðis­kerf­inu verði ekki án aðkomu verka­lýðshreyf­ing­ar­inn­ar og fyr­ir bar­áttu henn­ar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka