Fjölbreyttari verkefni en stórmyndir

Oblivion. Tom Cruise og félagar komu hingað til lands til …
Oblivion. Tom Cruise og félagar komu hingað til lands til að taka upp framtíðartryllinn Oblivion.

„Það er mikill áhugi á Íslandi og jafn á ýmsum verkefnum. Þetta eru kvikmyndir, auglýsingar, ljósmyndir og fjölbreyttari verkefni sem er gott,“ segir Helga Reykdal, framkvæmdarstjóri True North kvikmyndafyrirtækisins.

Helga vildi ekki tjá sig um einstaka verkefni en komið hefur fram að nýjasta mynd Marvel-fyrirtækisins um Captain America verði tekin upp hér á landi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Helga segir reglulega sé hringt til hennar þar sem verið er að skoða möguleikann á tökum hér á landi. „Það er ýmislegt í skoðun, það er ekkert fast í hendi til að tjá sig. Ég get ekki tjáð mig um einstaka verkefni, það er verið að skoða ýmsa vinkla.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert