Litskrúðugar mandarínendur sækja Ísland heim

Litskrúð steggja mandarínandar er með besta móti nú í kringum …
Litskrúð steggja mandarínandar er með besta móti nú í kringum varptíma þeirra en dofnar þegar líður á sumarið. Ljósmynd/Eyþór Ingi Jónsson

Mandarínendur gleðja nú fuglaunnendur víða um land en að minnsta kosti þrír steggir hafa sést hér á landi í liðinni viku.

Skrautlegur steggur heimsótti Borgarfjörð eystri og hélt sig þá í og við fjöruna nálægt Bræðslunni. Tveir steggir til viðbótar héldu til í austanverðum Eyjafirðinum og vöktu athygli viðstaddra með eftirtektarverðu útliti sínu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Heimsóknum þessara skrautlegu gesta hefur fjölgað að vorlagi síðustu ár á sama tíma og þeim hefur fjölgað í náttúru Bretlandseyja, þar sem varp þeirra hefur aukist.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert