Nokkuð hefur verið um slys í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Til dæmis féll hálfsjötugur karlmaður fjóra metra úr stiga, þegar listi á húsinu, sem hann studdi sig við, brotnaði. Maðurinn lenti á stétt og fann til eymsla í baki.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að maðurinn hafi verið fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlyningar.
Þá meiddist kona á öxl þegar hún var í leikfimi með fleiri konum. Talið var að hún hefði farið úr axlarlið og var einnig flutt á HSS með sjúkrabifreið.