Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í bílakjallara Höfðatorgs um fjögurleytið í nótt vegna elds í ruslafötu.
Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra höfðu öryggisverðir slökkt eldinn þegar slökkviliðið kom á vettvang en ekki var um mikinn eld að ræða.