Lögreglan í Kópavogi handtók ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna um tíu í gærkvöldi.
Var ökumaðurinn að auki ökuréttindalaus en hann hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Var hann færður á lögreglustöð til blóðsýnatöku en fékk að fara frjáls ferða sinna að því loknu.