Opna Color Run verslun í Hörpu

Ljósmynd/The Color Run

Á morgun, laugardag, verður The Color Run by Alvogen verslunin opnuð á fyrstu hæð í Hörpu. Í versluninni verða þátttakendum afhent hlaupagögn auk þess sem hægt er að skoða og kaupa ýmsan Color Run varning til að gera skemmtun og upplifun af hlaupinu þann 6. júní enn ánægjulegri.

Einnig geta miðaeigendur mátað og keypt Brooks skó og annan hlaupafatnað á 20% afslætti í versluninni í Hörpu, þar á meðal sérinnflutta Brooks hlaupaskó fyrir The Color Run.

Opnunartími verslunarinnar verður frá klukkan 11 til 19 frá laugardeginum 30. maí til föstudagsins 5. júní. Mikil áhersla er lögð á að hlauparar sæki hlaupagögn sín í The Color Run búðina fyrir hlaup til að losna við að eyða skemmtilegum tíma upphitunarveislunnar í röð eftir hlaupagögnum. Því borgar sig að leggja leið sína í Hörpu dagana fram að hlaup, líkt og segir í tilkynningu. 

Nú hefur á sjöunda þúsund manns skráð sig í The Color Run og má gera ráð fyrir því að hlaupið sé nú þegar orðið næst stærsta hlaup sumarsins á eftir Reykjavíkurmaraþoninu. Þó má gera ráð fyrir mun fleiri þátttakendum því börn 8 ára og yngri hlaupa frítt með foreldrum og eru ekki skráð í hlaupið fyrr en foreldrar sækja hlaupagögn sín í The Color Run verslunina í Hörpu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert