1. vinningur í Lottóinu gekk ekki út í dag en hann stóð í rúmlega 31 milljónum króna. Tveir voru með annan vinning sem gefur þeim hvorum um sig rúmlega 390 þúsund krónur í vasann.
Voru miðarnir sem skiluðu 2. vinning seldir í Skýlinu í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum og í Kjarval á Víkurbraut í Keflavík.
Að auki var einn áskrifandi með 4 réttar tölur og fær hann 100 þúsund krónur í sinn hlut.