Vaxandi vindur í dag

Það verður vindasamt um landið sunnanvert í dag.
Það verður vindasamt um landið sunnanvert í dag. mbl.is/Rax

Búast má við vaxandi vindi um landið sunnanvert í dag, suðaustan- og austanátt, 10-18 m/s. Verður rigning með köflum, hvassast og úrkomumest með suðurströndinni.

Annars spáir Veðurstofan austanátt 5-13 m/s norðurtil á landinu og verður þar bjart með köflum. Hiti verður á bilinu fimm til þrettán stig í dag, hlýjast á Norðvesturlandi.

Á morgun er síðan gert ráð fyrir norðaustan 8-15 m/s með svalara veðri og dálítilli vætu á Norður- og Austurlandi. Þó verður bjart með köflum suðvestantil á landinu og hiti að tólf stigum þar.

Hægt er að fylgjast með veðurspánni á veðurvef mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert