Gunnar endurkjörinn forseti SÍ

Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands.
Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands. mbl.is/Ómar

Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins laugardaginn 30. maí sl. en hann hefur setið í embættinu frá 2009. Pálmi R. Pétursson, fráfarandi varaforseti, hætti í stjórn en sæti hans tók Óskar Long Einarsson.

Sæti Óskars í varastjórn tekur Donika Kolica.

Að því er fram kemur í frétt á skak.is var fundurinn átakalítill og endurspeglaði ánægju með skákstarfið í dag. Á fundinum var Skákgengið samþykkt sem nýtt aðildarfélag Skáksambandsins.

„Tekist var á um nokkrar lagatillögur. Flestar tillögur voru felldar eða vísað til stjórnar. Þar má nefna tillögur um breytingar á Íslandsmót skákfélaga sem var vísað til stjórnar með 10 atkvæðum gegn 8. Það þýðir að 10 liða keppni verður til staðar a.m.k. tvö næstu keppnistímabil í efstu deild.

Tvær tillögur voru samþykktar. Samþykkt var að setja í lög sambandsins að öll mót á vegum SÍ verði reiknuð til FIDE-stiga sem er aðeins staðfesting á framkvæmdinni eins og hún hefur verið verið.

Stærsta breytingin á aðalfundinum var gjörbreyting á framkvæmd unglingamóta SÍ. Framvegis verður teflt í flokkum 8 ára og yngri, 9-10 ára, 11-12 ára, 13-14 og 15-16 ára. Munu mótin fara fram á sama tíma og einnig teflt um Íslandsmeistaratitil stúlkna í sömu aldursflokkum. Þess í stað munu falla niður nokkur mót sem haldin hafa verið.

Unglingameistaramót Íslands mun taka umtalsverðum breytingum. Það verður opið fyrir 17-22 ára keppendur (í stað 20 ára og yngri) auk þess sem sigurvegarar úr yngri flokkum fá þar keppnisrétt. Stærsta breytingin sem fór í gegn 10-9 eftir endurtalningu er að unglingameistari Íslands ár hvert fái keppnisrétt í landsliðsliðsflokki,“ segir í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka