Svifryksmengun verði yfir heilsuverndarmörkum

Allir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum ættu að forðast …
Allir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna. Sú ráðlegging gildir einnig um börn. mbl.is/RAX

Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag. Töluverður vindur hefur verið, þurrar götur og engar líkur eru á úrkomu, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þá segir, að klukkan 14:30 í dag hafi hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi verið 147 míkrógrömm á rúmmetra og 735 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöð sem staðsett er við Bíldshöfða 2. Sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Allir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna. Sú ráðlegging gildir einnig um börn.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á  og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsettar við leikskólann Öskju við Nauthólsveg 87 og í Ártúnsbrekku við Bíldshöfða 2.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert