Þrír á sjúkrahús eftir harðan árekstur

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Hringbraut í Keflavík. Meiðsl þeirra voru hins vegar minniháttar. Slysið varð þegar ökumaður ók bíl sínum yfir á öfugan vegarhelming, með fyrrgreindum afleiðingum.

Lögreglan á Suðurnesjum segir mikla mildi að ekki hafi farið verr. Nokkur stærðarmundur var á bílunum, því um Toyota Yaris og Land Cruiser var að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert