Í kvöld hafa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið kallaðar út í þremur landshlutum vegna vélarlausra báta. Rétt fyrir átta var björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík kölluð út vegna báts við Stigahlíð. Var sá vélarvana og komin það nálægt landi að bráð hætta stafaði af. Björgunarmenn voru snöggir á staðinn og var þá annar bátur búinn að koma tóg í þann vélarvana. Björgunarbátur Bolvíkinga dró hann í höfn á Bolungarvík.
Rúmlega átta var björgunarsveitin Þorbjörn kölluð út vegna vélarvana báts um átta sjómílur frá Grindavík. Björgunarskipið Oddur Gíslason fór á staðinn og dró bátinn til Grindavíkur. Klukkan hálfníu var björgunarsveitin Ársæll kölluð út vegna vélarvana báts milli Viðeyjar og Engeyjar. Var báturinn tekinn í tog í Snarfarahöfn. Hátt í 30 björgunarmenn tóku þátt í þessum þremur aðgerðum sem allar gengu afar vel.