Hjólað í Varmahlíð á 18 tímum

Einstaklingskeppendur í Cyclothoni WOW lögðu í 1358 km langt hjólreiðaferðalag hringinn í kringum landið en lagt var af stað úr Laugardalnum í morgun. Vegalengdina þurfa þeir að leggja að baki á 84 klst. Hafliði Richard Jónsson, sem keppir fyrir VSÓ Ráðgjöf, stefnir á að vera kominn í Varmahlíð á 18 klst. en keppendur mega einungis hvíla sig í liðsbílnum sem fylgir þeim alla leið.

mbl.is var á staðnum þegar keppendur lögðu af stað í morgun en þetta er í annað sinn sem keppt er í einstaklingskeppni í Cyclothoni WOW. Í myndskeiðinu er ranglega sagt að þetta sé fyrsta einstaklingskeppnin.

Vefur keppninnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert