Hvassahraun var óvænt lending

Reykjavíkurflugvöllur hefur verið staðsettur í Vatnsmýri í um 70 ár.
Reykjavíkurflugvöllur hefur verið staðsettur í Vatnsmýri í um 70 ár. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég átti nú síður von á því að Hvassahraun yrði fyrir valinu. Mín fyrirfram skoðun var sú að breytingar í Vatnsmýrinni yrðu ofan á og að flugvallarstæðið þar yrði nýtt áfram. Þetta kom mér því svolítið á óvart,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, í samtali við mbl.is og vísar þar til niðurstöðu stýrihóps ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair.

Fram kemur í niðurstöðum hópsins, sem kynntar voru í gær, það álit að Hvassahraun sé besti kosturinn fyrir nýjan innanlandsflugvöll. Var nefndinni falið að kanna aðra kosti en Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri. 

Halldór bendir á að hann vilji áfram nálgast verkefnið með opnum hug og felur slíkt meðal annars í sér að farið verði náið yfir kosti og galla. „Það er vafalaust margt sem á eftir að koma fram í umræðunni á næstunni,“ segir hann.

Áætlaður stofnkostnaður nýs flugvallar er samkvæmt skýrsluhöfundum um 22 milljarðar króna. Leggur hópurinn jafnframt til að flugvallarskilyrði í Hvassahrauni verði fullkönnuð sem og rekstrarskilyrði. Telur stýrihópurinn einnig nauðsynlegt að ná samkomulagi um að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri á meðan unnið sé að framkvæmdinni.

Undir þetta tekur Halldór.

„Ég legg ofuráherslu á mikilvægi þess að tryggja áfram rekstaröryggi flugsins í Vatnsmýri meðan á þessu stendur. Það er niðurstaða nefndarinnar og í raun um leið loforð af hálfu Reykjavíkurborgar vegna þess að fulltrúi borgarinnar er í nefndinni,“ segir Halldór en fyrir Reykjavíkurborg situr í stýrihópnum Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

„Þar til að nýr flugvöllur, hvar svo sem hann verður, er tilbúinn verður rekstraröryggi flugs í Vatnsmýri tryggt. Það er auðvitað mjög mikilvægt atriði,“ segir Halldór.  

Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert