10% aukning í grunnnám á Bifröst

Bifröst í Borgarfirði.
Bifröst í Borgarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Talsverð fjölgun umsókna var í grunnnám Háskólans á Bifröst en umsóknarfrestur rann út um miðjan síðasta mánuð. Nemendum sem sækja um háskólanám á Bifröst hefur fjölgað á hverju ári undanfarin tvö ár. Í fréttatilkynningu segir að fjölgunin núna sé mest í viðskiptalögfræði en sú nýbreytni verður tekin upp á komandi skólaári að boðið verður upp á viðskiptalögfræði í fjarnámi og einnig sem sérstök námsbraut með vinnu. Einnig hefja tvær nýjar námsbrautir á félagsvísindasviði göngu sína í haust, þ.e. BA í byltingafræði og BA í miðlun og almannatengslum sem fengu góðar viðtökur.

Umsóknartölur í meistaranám voru góðar og eftirspurn eftir framhaldsnámi á sviði viðskipta og stjórnunar er mikil. Að þessu sinni voru flestar umsóknir í MS í forystu og stjórnun sem hóf göngu sína haustið 2014 og hlaut þá strax gríðarlega góðar móttökur og höfðu aldrei fleiri skráð sig í meistaranám á einu skólaári. MA í menningarstjórnun var með næstflestar umsóknir en sú námsbraut er að hefja sitt ellefta starfsár við Háskólann á Bifröst.

Auk fjölgunar umsókna er bakgrunnur nemenda einnig sterkari en á undanförnum árum og eru nemendur með betri einkunnir og grunn úr framhaldsskólum að sækja um háskólanám á Bifröst, segir í fréttatilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert