Nýtt hlutverk framundan: Halla í kvikmynd Robins Hardys

Halla Vilhjálmsdóttir
Halla Vilhjálmsdóttir mbl.is/Golli

Halla Vilhjálmsdóttir leikur eitt aðalhlutverkanna í lokakafla þríleiks Robins Hardys, sem hófst árið 1973 með költ-kvikmyndinni The Wicker Man en hún skartaði meðal annars Christopher Lee heitnum í aðalhlutverki. Þetta kemur fram á vef Herald Scotland.

Hardy ætlar að safna fyrir gerð kvikmyndarinnar í gegnum fjáröflunarsíðuna Indiegogo og þarf 140 þúsund pund til að hefja tökur. Leikstjórinn segir þetta ekki beint framhald af The Wicker Man heldur verði nýja myndin í sama dúr – mikið um tónlist, grín, kynlíf og leyndardóma.

Peningarnir sem safnast á Indiegogo verða meðal annars notaðir til að byggja norrænan skemmtigarð, víkingaskip sem getur siglt og gufuknúna þyrlu og mótorhjól en tökur eru meðal annars áætlaðar á Íslandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert