Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á síauknum umferðarþunga þessa stundina og minnir ökumenn á að sýna þolinmæði í umferðinni.
„Það er ekkert unnið með því að taka fram úr bílalestum og draga uppi næstu lest á undan. Sýnum þolinmæði og tillitsemi í umferðinni og þá skilum við okkur frekar öll heil heim!“ segir lögreglan á Facebook-síðu sinni.