Keyrðu hringinn á 27 km/klst

Vinirnir Karl Friðriks­son og Grét­ar Gúst­avs­son luku hringferð sinni á traktorum í dag. Ferðalagið hófst 25. júní og lentu þeir félagar í hinum ýmsu ævintýrum. Þar nefna þeir m.a. þoku og slagviðri í Jökuldal, samakstur með traktorum víða um land og heimsóknir til leikskólabarna á landsbyggðinni.

Með akstrinum vildu þeir einnig vekja athygli á mikilvægi vináttu í lífinu, og þá sérstaklega í baráttunni við einelti, en þeir hafa sjálfir verið vinir frá blautu barnsbeini. Þannig stóðu þeir í samstarfi við Barnaheill fyrir átakinu Vinir Ferguson gegn einelti. Átakið mun standa framyfir helgi og verður hægt að styrkja það í gegnum söfnunarsímann 904-1900, eða í gegnum bankareikning samtakanna. 

Fréttir mbl.is:

12 tíma hristingur á traktor í gær

„Verðum hálfgerðir titrarar eftir það“

Mjakast hringinn á traktor

Láta 50 ára gamlan draum rætast

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert