Flogið inn í fortíðina

Morgunflug Flugfélags Íslands í aðflugi að ÍSafjarðarflugvelli undir öryggri stjórn …
Morgunflug Flugfélags Íslands í aðflugi að ÍSafjarðarflugvelli undir öryggri stjórn Jóhanns Skírnissonar, flugstjóra og Gunnars Freys Gunnarssonar, flugmanns. Ísafjörður kúrir hér milli fjall og fortíðin er innan seilingar.

Sunnudag einn í júlí héldu feðginin Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, og Marta María Sæberg í ævintýralega dagsferð á vit vestfirskrar fortíðar. Þau flugu með Flugfélagi Íslands frá Reykjavík til Ísafjarðar að morgni og leituðu uppi þá staði sem nútíminn hefur enn ekki náð að hrófla við. Ferðin hófst í Ósvör, þar sem er gömul verbúð. Þaðan var haldið í rúmlega aldargamlan lystigarð, skyggnst inn í nær ósnert eyðibýli á Arnarnesi, kaffi drukkið á Þingeyri og hringnum síðan lokað á Ísafirði, þar sem kvöldverður var snæddur í Tjöruhúsinu. Að kvöldi var svo flogið heim. Ljósmyndarinn hafði myndavélina að sjálfsögðu meðferðis og opnar nú lesendum glugga til fortíðar.

Verbúð Í Ósvör nærri Bolungarvík er sjóminjasafn. Þar má berja …
Verbúð Í Ósvör nærri Bolungarvík er sjóminjasafn. Þar má berja augum gamla verbúð, sem er enn svo til nákvæmlega eins og hún var þegar hún var notuð. Árni Sæberg

Eftir lendingu á Ísafirði var strax haldið í átt að Bolungarvík og komið við í gömlu verbúðunum sem standa fyrir utan bæinn. Árni, sem hefur mikið ferðast um landið og undanfarið verið duglegur að kíkja með erlenda gesti um Suðurlandið, segir að hann hafi strax tekið eftir því að himinn og haf væri á milli ástandsins fyrir sunnan og á Vestfjörðum. Þannig væru þau að losna við mesta hluta af túrismanum sem er við vinsælustu staðina og við þjóðveg eitt fyrir sunnan. Sú skoðun hafi ekki breyst allan daginn og stundum hafi þau tvö haft viðkomustaðina alveg út af fyrir sig, sem Árni segir hafa verið einstaklega heillandi umhverfi.

Margt áhugavert er til sýnis á sjóminjasafninu og geta gestir …
Margt áhugavert er til sýnis á sjóminjasafninu og geta gestir þar séð hvaða hlutir voru notaðir við sjómannslífið. Árni Sæberg

Frá Bolungarvík var keyrt til baka og í gegnum göngin til Önundarfjarðar og áfram til Dýrafjarðar. Strax og komið var niður af Gemlufallsheiðinni var stefnan tekin út fjörðinn í átt að Núpi, en þar var lengi vel héraðsskóli. Nú er þar rekið hótel, en nálægt bænum er að finna skrúðgarðinn Skrúð, sem var byggður upp í byrjun síðustu aldar.

Garðurinn Skúrður er einn þekktasti skrúðgarður landsins og einnig með …
Garðurinn Skúrður er einn þekktasti skrúðgarður landsins og einnig með þeim eldri, en hann var stofnaður árið 1909 af Sigtryggi Guðlaugssyni, prófasti og skólastjóra. Ofan garðsins gnæfir fjallið Núpur.

Árni hefur sjálfur sterkar taugar til Núps og svæðisins í kring, en hann var sjálfur um tíma nemandi við skólann. Þekkir hann því sögu staðarins vel, staðhætti og býr yfir nokkrum fróðleiksmolum.

Frá Skrúði sést vel upp á Núp.
Frá Skrúði sést vel upp á Núp. Árni Sæberg

Næst Núpi stendur húsið Hlíð, en þar er að finna menningarsafn þar sem ævi og starfi Sigtryggs Guðlaugssonar, prófasts og skólastjóra á staðnum, eru gerð góð skil. Safnið er reyndar heimili Sigtryggs og konu hans frá miðri síðustu öld. Sigtryggur var mikill athafnamaður, en hann stofnaði meðal annars garðinn Skrúð og átti frumkvæði að stofnun skólans, sem seinna varð að héraðsskólanum.

Þetta reisulega hús byggði Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi. Þar er …
Þetta reisulega hús byggði Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi. Þar er nú Menningarminjasafnið Hlíð, rekið af syni Sigtryggs, Þresti Sigtryggssyni. Safnið er í raun heimili Sigtryggs og konu hans, Hjaltlínu Guðjónsdóttur, eins og það var um miðbik síðustu aldar. Árni Sæberg

Áfram var haldið út fjörðinn, þar til vegurinn endaði, en þar kom í ljós eyðibýlið Arnarnes. Húsið lítur út eins og það hafi verið yfirgefið snögglega og er húsbúnaður enn á staðnum, þótt húsið sjálft sé í niðurníðslu.

Við enda vegarins kemur í ljós gamalt hús sem virðist …
Við enda vegarins kemur í ljós gamalt hús sem virðist vera löngu yfirgefið. Árni Sæberg
Eyðibýlið heitir Arnarnes og er í Dýrafirði. Þar bjó áður …
Eyðibýlið heitir Arnarnes og er í Dýrafirði. Þar bjó áður kona sem sagt er að hafi farið í heimsókn til Reykjavíkur en aldrei snúið heim aftur. Þegar gengið er inn í eyðibýlið er líkt og íbúinn hafi skroppið út og sé væntanlegur á hverri stundu. Árni Sæberg

Eins og sjá má af myndunum er margt enn á sínum stað, hvort sem um er að ræða bolla og diska, matarbauka eða stóla. Þá er Rafha eldavélin á sínum stað, en bæði pottur og panna eru á hellunum.

Eins og sjá má á myndunum sem fylgja gnæfir fjall yfir bænum og garðinum, en Árni segir að áður fyrr hafi það virkað sem einskonar veðurathugunarstöð fyrir heimamenn. Þannig hafi komið ákveðin hljóð frá fjallinu við vissar veðuraðstæður og þá vissu allir að það ætti ekki að róa, enda var það jafnan fyrirboði um slæmt veður.

Innanstokksmunir eru þar sem þeir voru skildir eftir á síðustu …
Innanstokksmunir eru þar sem þeir voru skildir eftir á síðustu öld. Árni Sæberg
Diskasett, kör og auðvitað salið á sínum stað.
Diskasett, kör og auðvitað salið á sínum stað.
Ummerki í húsinu bera það með sér að ekki hafi …
Ummerki í húsinu bera það með sér að ekki hafi átt að yfirgefa húsið snögglega. Árni Sæberg

Næsti áfangastaður er bærinn Þingeyri, en þegar keyrt er í gegnum bæinn blasir við gestum stórglæsilegt hús í miðjum bænum sem gengur undir nafninu Simbahöllin. Þar hefur framtakssamt fólk tekið í gegn gamla kaupmannsbúð og breytt í kaffihús, en þó látið gamlar innréttingar og andann halda sér. Þarna er kjörið tækifæri að stoppa og fá sér kaffi og köku, enda heilmikil keyrsla að baki og enn talsvert eftir.

Við Dýrafjörð stendur bærinn Þingeyri og þar er þetta skemmtilega …
Við Dýrafjörð stendur bærinn Þingeyri og þar er þetta skemmtilega hús sem gengur undir nafninu Simbahöllin. Best að kíkja inn og sjá hvað þar er á boðstólnum.
Innandyra er kaffihúsið Simbahöllin starfrækt, en í húsinu rak kaupmaður …
Innandyra er kaffihúsið Simbahöllin starfrækt, en í húsinu rak kaupmaður áður verslun sína og hafa innréttingar kaupmannsins fengið að halda sér. Til hægri á myndinni er Marta María Sæberg, ljósmyndaradóttir. Árni Sæberg

Brunað er til baka til Ísafjarðar, en markmiðið er að kíkja á hið rómaða Tjöruhús áður en fljúga á til baka seinna um kvöldið. Gömlu húsunum á Ísafirði hefur verið haldið gífurlega vel við og segir Árni að það sé æðislegt að sjá hversu gamli tíminn varðveitist vel á Vestfjörðum. Mikið sé lagt upp úr varðveislu og viðhaldi og nú séu eldri hús mikil prýði og vinsælir áfangastaðir. Segir hann að á Ísafirði hafi þetta tekist sérlega vel upp, en einnig komi Þingeyri sterk inn.

Gömlu húsin á Ísafirði taka á móti ferðafólki. Ísfirðingar hafa …
Gömlu húsin á Ísafirði taka á móti ferðafólki. Ísfirðingar hafa staðið vel að því að vernda falleg, gömul hús sem nú teljast mikil bæjarprýði. Byggðasafn er í húsinu fyrir miðju, en til hægri má sjá hið fagurrauða Tjöruhús. Árni Sæberg
Laumast til að kíkja inn í Tjöruhúsið.
Laumast til að kíkja inn í Tjöruhúsið. Árni Sæberg


Þessi gamla ásýnd á mörgum stöðum er þó ekki helsta aðdráttarafl staðarins, en Árni segir að fjöllin og náttúran á Vestfjörðum séu engu lík og enginn staður sé í raun eins og Vestfirðir. Árni var sjálfur lengi á varðskipum og sigldi reglulega um firðina og segist bera sterkar taugar til svæðisins. Það sem hann segir þó standa upp úr sinni reynslu sé þegar hann fór árið 1993 á kajak í hópi með fleirum og réri um firðina. Þá hafi aðal málið verið að fara snemma að sofa til að vakna aftur snemma um morguninn þar sem oftast var hægari átt og rólegra fyrri hluta dags. Minnist hann sérstaklega þess að hafa spegilsléttan sjó í kringum sig, horfa á fugla dugga stutt frá bátnum og kyrrðina í morgunsólinni. „Alsæla,“ eru einu orðin sem lýsa þessu að sögn Árna. 

Kokkar Tjöruhússins lögðu sál sína í matinn sem bragðaðist eftir …
Kokkar Tjöruhússins lögðu sál sína í matinn sem bragðaðist eftir því og var kærkominn að loknum löngum degi í vestfirskum sveitum. Árni Sæberg

Eftir langan dag var snætt á Tjöruhúsinu áður en haldið var aftur upp í flugvél til baka til Reykjavíkur. Árni segir að besti mælikvarðinn á skemmtun og góða upplifun ferðarinnar hafi þó verið þegar hann áttaði sig á því að dóttir hans, sem er á unglingsaldri, hafði varla skoðað símann allan daginn, en slíkt er því miður að verða æ sjaldgæfara, bæði hjá fullorðnum sem og yngra fólki.

Ljósmyndarinn sjálfur, Árni Sæberg.
Ljósmyndarinn sjálfur, Árni Sæberg.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert