Ung ferðakona varð fyrir kynferðisbroti og líkamsárás á tjaldstæðinu í Hrísey aðfaranótt sunnudags. Að sögn rannsóknarlögreglunnar á Akureyri er málið enn til rannsóknar.
Konan leitaði til lögreglu á snemma á sunnudagsmorgni og handtók lögregla mann í kjölfarið sem var yfirheyrður í tengslum við málið. Hann var látinn laus að lokinni yfirheyrslu og er rannsókn málsins ekki lokið.