22% fleiri vegabréf gefin út

Í maí voru 8.144 íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.664 vegabréf gefin út í maí 2014. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 22,2% milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands. 

Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert