Lögreglan stöðvaði bifreið stöðvuð Suðurlandsbraut um hálf átta í gærkvöldi en ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og vörslu/sölu fíkniefna.
Maðurinn handtekinn og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Bifreiðin reyndist ótryggð og númer því tekin af.
Um hálf tvö var síðan bifreið stöðvuð á Sæbraut af lögreglu. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur.Bifreiðin reyndist ótryggð og númer því tekin af.
Lögreglan þurfti að hafa afskipti af mönnum í heimahúsi í Garðabæ á níunda tímanum í gærkvöldi vegna vörslu / neyslu fíkniefna. Húsráðandi handtekinn og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.
Um miðnætti barst lögreglu tilkynning um innbrot í sumarbústað við Hafnarfjörð. Þjófarnir höfðu spennt upp hurð og stolið flatskjá í bústaðnum.