Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir upplýsingum um manninn á myndskeiðinu sem fylgir með fréttinni en hann er grunaður um innbrot í verslun í verslunarmiðstöðinni Firði aðfararnótt 2.ágúst.
Þeir sem hafa upplýsingar um manninn eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1142 eða einkaskilaboð á Facebooksíðu LRH.
Um er að ræða karlmann sem var klæddur í bláa Hummel íþróttapeysu. Hann er með derhúfu og er skyggnið með íslensku fánalitunum. Eins er hann með bakpoka sem merktur er Hummel og HK (Handknattleiksfélag Kópavogs)