Íbúð hækkaði um 28 milljónir

mbl.is/Sigurður Bogi

Verð nýrra íbúða í Skuggahverfi hefur hækkað mikið á síðustu misserum og kostar dýrasta nýja íbúðin sem nú er auglýst til sölu 211,4 milljónir. Íbúðin er á Lindargötu 39 og kostaði 183,8 milljónir sl. haust. Verðhækkunin er 27,6 milljónir.

Norðan við þann turn er annar turn, Vatnsstígur 20-22, í byggingu og eru þar nú fjórar íbúðir til sölu sem kosta yfir 150 milljónir króna.

Ef marka má söluvefinn Skuggi.is er ágæt eftirspurn eftir nýjum íbúðum í hverfinu því 31 af 36 íbúðum á Lindargötu 39 er sögð seld og 23 af 41 íbúð á Vatnsstíg 20-22. Þar af eru sex íbúðir á efstu hæðunum á Vatnsstíg 20-22 seldar en þær verða ekki afhentar fyrr en næsta sumar, að því er fram kemur í umfjöllun um verðhækkanir á nýjum íbúðum í hverfinu  í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert