Svítan breytist í bar

Efsta hæð hins sögufræga Gamla bíós tekur nú umtalsverðum breytingum, en verið er að breyta Petersen-svítunni svokölluðu í bar og kaffihús í klassískum stíl. Reynt er að halda í gamlan anda hússins við breytingarnar, en auk breytinganna innanhúss er verið að standsetja stóran og glæsilegan þakgarð með útsýni yfir miðborgina.

Áætluð verklok eru í september, en staðurinn opnar þó dyr sínar fyrir fyrstu viðskiptavinum á Menningarnótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert