Reikna má með hviðum allt að 30-35 m/s fram á nótt, s.s. á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli, í Svínadal og Saurbæ í Dölum, í Reykhólasveit og við Blönduós, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Tilkynningin í heild:
Hvessir af NA, einkum um landið norðvestan- og vestanvert. Meðalvindur verður allt að 20 m/s og við þessar aðstæður verður byljótt hlémegin við fjöll. Reikna má með hviðum allt að 30-35 m/s fram á nóttina. S.s. á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli, í Svínadal og Saurbæ í Dölum, í Reykhólasveit og við Blönduós.
Unnið verður við malbikun í dag miðvikudag 26. ágúst á Hringvegi 1 í Kollafirði á milli Þingvallavegar og Brautarholtsvegar. Nokkur truflun verður á þessum vegkafla á meðan framkvæmdum stendur þar sem önnur akreininn í einu verður lokuð.
Unnið verður við malbikun á Hringtorgi gatnamót Hafnargötu, Njarðarbraut og þjóðbraut (við KFC) í Reykjanesbæ fimmtudaginn 27. ágúst. Áætlaður verktími er frá kl.06:00 til 19:00. Gatan verður lokuð meðan á framkvæmdum stendur. Hjáleiðir verða merktar.
Malbikun verður á Reykjanesbraut á kaflanum frá undirgöngum að Hnoðraholti niður fyrir Bæjarlind í dag miðjukudaginn 26. ágúst. Áætlaður verktími er frá kl. 13:30 til kl. 21:00.
Miðvikudaginn 26. ágúst munu malbikunarframkvæmdir fara fram í Hveradalabrekku á Hellisheiði frá kl. 6:00 og fram á kvöld. Þrengt verður að umferð og hraði tekinn niður í 50 km/klst.
Vegfarendur eru beðnir um að virða vinnusvæðamerkingar og sýna aðgát á vinnusvæðum.
Næstu tvær vikur verður unnið við breikkun og lagfæringar á Álftanesvegi um Engidal milli Hafnarfjarðarvegar og Prýðihverfis. Meðan á þessari framkvæmd stendur má búast við nokkurri röskun á umferð um svæðið. Áætlað er að verkinu verði lokið að fullu 14. september n.k. Verði þörf á að koma upp tímabundnum hjáleiðum vegna einhverra þátta framkvæmdarinnar verður það auglýst sérstaklega. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.
Brúin yfir Vatnsdalsá, innst í Vatnsdal við Grímstungu er lokuð um óákveðinn tíma.
Unnið er við að setja niður ræsi í gegnum hringveginn á Hellisheiði efst í Kömbum. Umferð verður beint um hjáleið og verður hraði tekinn niður í 50 km/klst á þessu svæði. Áætlað er að verkinu ljúki í byrjun september.
Vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á Reykjanesbraut við Fitjar verður þrengt að umferð á leið til Reykjavíkur á um 400 m kafla við Stekk. Til að byrja með verður umferðarhraði óbreyttur meðfram vinnusvæðinu, 70 km/klst. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 km/klst. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.
Hálendisvegir eru nú flestir opnir en sumstaðar er þó aksturbann áfram í gildi, sjá nánar hér.