Malbikað á Kjalarnesi

Malbikunarframkvæmdir.
Malbikunarframkvæmdir. mbl.is/Golli

Unnið verður við malbikun á Hringvegi 1 milli Þingvallavegar og Brautarholtsvegar í dag fimmtudag 27. ágúst. Áætlaður verktími er frá kl 08:00 og fram eftir degi. Umferðatafir verða á þessum kafla þar sem önnur akreinin er lokuð.

Unnið verður að malbiksviðgerðum á Hringvegi 1, Vesturlandsvegi frá Laxá í Leirársveit að Skorholti í dag fimmtudag 27. ágúst. Áætlaður verktími er frá kl. 08:00 til 17:00. Umferðartafir gætu orðið á þessum kafla meðan á vinnu stendur.

Unnið verður við malbikun á Hringtorgi gatnamót Hafnargötu, Njarðarbraut og þjóðbraut (við KFC) í Reykjanesbæ  fimmtudaginn 27. ágúst. Áætlaður verktími er frá kl.06:00 til 19:00. Gatan verður lokuð meðan á framkvæmdum stendur. Hjáleiðir verða merktar, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert