Þjóðvegur 1 er lokaður við ánna Klifanda austan Péturseyjar vegna umferðarslyss og verður um óákveðinn tíma. Búið er að opna veginn norðan Bjarnafjarðar á Ströndum en vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Tilkynningin í heild:
Suðurlandsvegur, þjóðvegur 1 er lokaður við ánna Klifanda austan Péturseyjar vegna umferðarslyss. Vegurinn verður lokaður um óákveðinn tíma.
Búið er að opna veginn norðan Bjarnafjarðar á Ströndum en vegfarendur beðnir um að sýna aðgát.
Siglufjarðarvegur er lokaður vestan við Strákagöng vegna skriðufalla.
Á morgun mánudaginn 31. ágúst verður malbikun í gangi milli Helgamelar og Melasveitarvegar. ( Hringvegur 1, Hafnarvegur - Borgarfjarðarbraut.) Byrjað verður kl.: 08:00 um morguninn að undirbúa malbikun. Nokkur truflun verður á þessum vegkafla á meðan framkvæmdum stendur.
Á morgun mánudaginn 31. ágúst og þriðjudaginn 1. september verður unnið við malbikun á Hringvegi (1) á Kjalarnesi. ATH. að framkvæmdir standa yfir í 2 daga.
Byrjað verður um kl. 8 um morguninn að undirbúa malbikun og má búast við að framkvæmdir standi til kl. 21. Nokkur truflun verður á þessum vegkafla á meðan framkvæmdum stendur.
Vegna framkvæmda við lagningar rafstrengs til Helguvíkur hefur Reykjanesbraut sunnan við Rósaselstorg verið grafin í sundur og hjáleið verið merkt.
Vinsamlegast farið varlega í kringum vinnusvæðið og virðið hraðatakmarkanir.
Vegfarendur eru beðnir um að virða vinnusvæðamerkingar og sýna aðgát á vinnusvæðum.
Næstu tvær vikur verður unnið við breikkun og lagfæringar á Álftanesvegi um Engidal milli Hafnarfjarðarvegar og Prýðihverfis. Meðan á þessari framkvæmd stendur má búast við nokkurri röskun á umferð um svæðið. Áætlað er að verkinu verði lokið að fullu 14. september n.k. Verði þörf á að koma upp tímabundnum hjáleiðum vegna einhverra þátta framkvæmdarinnar verður það auglýst sérstaklega. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.
Brúin yfir Vatnsdalsá, innst í Vatnsdal við Grímstungu er lokuð um óákveðinn tíma.
Unnið er við að setja niður ræsi í gegnum hringveginn á Hellisheiði efst í Kömbum. Umferð verður beint um hjáleið og verður hraði tekinn niður í 50 km/klst á þessu svæði. Áætlað er að verkinu ljúki í byrjun september.
Vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á Reykjanesbraut við Fitjar verður þrengt að umferð á leið til Reykjavíkur á um 400 m kafla við Stekk. Til að byrja með verður umferðarhraði óbreyttur meðfram vinnusvæðinu, 70 km/klst. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 km/klst. Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.
Hálendisvegir eru nú flestir opnir en sumstaðar er þó aksturbann áfram í gildi, sjá nánar hér.