Árni Múli Jónasson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Þroskahjálpar af Friðriki Sigurðssyni sem sinnt hefur starfinu í 21 ár.
Friðrik verður áfram í hlutastarfi hjá samtökunum sem verkefnisstjóri.
Árni Múli er lögfræðingur að mennt, með meistarapróf í alþjóðlegum mannréttindalögum frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hann var bæjarstjóri á Akranesi 2010-2012. Hann var áður lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og aðstoðarfiskistofustjóri þar til hann tók við starfi fiskistofustjóra árið 2009.