Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Manninum er gefið að sök að hafa á tímabilinu 14. apríl 2011 til 2. janúar 2012 dregið sér eða einkahlutafélagi sínu um 1,4 milljónir sem sjö einstaklingar höfðu lagt inn á reikning til tryggingar á leigugreiðslum vegna leigu á íbúðarhúsnæði.
Auk refsikröfu krefja þeir sjö einstaklingar hverra fé hann dró sér hann um endurgreiðslu fjárins. Málið var þingfest í dag.