Spyr hvort ráðherra hyggist friða Reykjavíkurflugvöll

Heiða Kristín Helgadóttir.
Heiða Kristín Helgadóttir.

Heiða Kristín Helgadóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, beindi í dag fyrirspurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, um hvort hann hyggist friða landsvæðið sem inn­an­lands­flugvöllurinn í Vatnsmýri er á, eða byggingar á flugvallarsvæðinu, nái breyting á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012, fram að ganga á þessu þingi.

Þá spyr hún einnig hvort ráðherra hyggist taka eignarnámi byggingar á flugvallarsvæðinu, eða flugvallarsvæðið í heild, nái breytingarnar fram að ganga.

Breytingarnar sem hún á við eru þær sem boðaðar voru í tillögu að frumvarpi í gær. Nái breytingarnar fram að ganga hefði forsætisráðherra heimild til að taka lönd, mannvirki og réttindi eignarnámi til að framkvæma friðlýsingu samkvæmt lögunum.

Í frumvarpinu segir að menningarminjar teljist vera ummerki um sögu þjóðarinnar, svo sem fornminjar, menningar- og búsetulandslag, kirkjugripir og minningarmörk, hús og önnur mannvirki, skip og bátar, samgöngutæki, listmunir og nytjahlutir, svo og myndir og aðrar heimildir um menningarsögu þjóðarinnar.

Fyrirspurn Heiðu Kristínar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert