Trúfélög sjái ekki um hjónavígslur

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Skjáskot af Alþingi.is

„Hjónavígsla er löggerningur og hefur því réttaráhrif. Einhverra hluta vegna hafa ýmsir í frjálsum félagasamtökum heimild til að framkvæma þennan löggerning. Með því eru þeir opinberir sýslunarmenn.“

Þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag. Hann bendir á að í ljósi réttar samkynhneigðra til þess að ganga í hjónaband hafi samviskufrelsi presta eða annarra forstöðumanna trúfélaga enga þýðingu. Ekki frekar en samviskufrelsi sýslumanna.

„Rétt er að taka þennan löggerning alfarið úr höndum forstöðumanna trúfélaga svo þeir geti blessað hjónin eða hjónaefnin eftir því sem samviskan býður þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert